flash-background
We Can End Poverty

ICELANDIC

Að STANDA VIð LOFORðIð €

Eitt af þeim sögulegu loforðum sem 189 veraldarleiðtogar gáfu á Þúsaldarfundi sínum árið 2000 var að uppræta fátækt fyrir árið 2015. Þetta var einn liður í Þúsaldaryfirlýsingunni og Þúsaldarmarkmiðunum um þróun (MDGs). Markmiðin eru átta liða áætlun með haldbærum takmörkum og tímaramma til að bæta líf fátækasta fólks veraldar. Veraldarleiðtogarnir munu hittast að nýju 20. September í New York til að fara yfir stöðuna. hafa samþykkt að Þúsaldarmarkmiðunum skuli náð fyrir 2015. Það er okkar að tryggja að leiðtogarnir standi við skuldbindingar sínar.

Sameinuðu þjóðirnar hafa ýtt úr vör alheims-herferð sem ber nafnið WeCan End Poverty – Við getum upprætt fátækt.

Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu í Brussel (UNRIC) hefur í samvinnu við Spán sem forysturíki Evrópusambandsins á fyrri helmingi ársins, hleypt af stokkunum samkeppni sem hlotið hefur nafnið “Slepptu sköpunargleðinni lausri gegn fátækt (“Unleash Your Creativity Against Poverty”.) Hér er um að ræða samkeppni um dagblaðaauglýsingu gegn fátækt sem er opin borgurum í 48 Evrópuríkjum, þar jafnt fagmönnum sem áhugamönnum. Málsmetandi dagblöð í Evrópu hafa slegist í lið með Evrópuherferð Sameinuðu þjóðanna og munu birta auglýsingarnar sem bera sigur úr býtum.

Skilið inn auglýsingu í keppnina og notið merki keppninnar.

Þrjátíu auglýsingar verða valdar í úrslit af skipuleggjendum, almenningi og sex manna dómnefnd.

Besta auglýsingin hreppir fyrstu verðlaun að andvirði 5.000 Evra sem Spánn sem forysturíki Evrópusambandsins nú um stundir, veitir við athöfn í Madrid í september.

Allir geta notað merki herferðarinnar endurgjaldslaust hvort sem þeir taka þátt í keppninni eða ekki. Við hvetjum alla til þess að hala niður og nota merkið.

Allir, hvar í heiminum sem þeir búa, geta greitt atkvæði.

 
 
This content requires the Adobe Flash Player.

get_adobe_flash_player